
Í kyrrlátu umhverfi rétt utan við Selfoss bjóðum við upp á leiddar gusur þar sem hiti, kuldi, ilmur og náttúra fléttast saman í einstaka upplifun.
gusan
Gusan býður upp á fallegt og öruggt rými þar sem fólk getur stigið út úr amstri dagsins og tengst sjálfu sér, fólkinu í kringum sig og náttúrunni.
Hver gusa er einstök og getur verið ólík upplifun fyrir hvern og einn. Stundum eru ró og nærvera í forgrunni, stundum fjör og kraftur.

Nánar um gusuna
Gusur geta verið ólíkar og hentað mismunandi fólki og tilefnum. Dagskráin getur meðal annars verið með partý-, reif- eða rokkgusum og gusum fyrir 65 ára og eldri.
Rannsóknir benda til þess að gufuböð geti haft jákvæð áhrif á líkamlega heilsu og andlega líðan.
Gusa getur hentað flestum. Ef þú ert óviss um hvort gusan henti þér er ráðlagt að ráðfæra sig við viðeigandi sérfræðing áður en þú tekur þátt. Þú getur einnig sent okkur fyrirspurn ef þú hefur spurningar.

Leidd upplifun
Gusumeistari heldur utan um og stýrir hverri gusuathöfn. Að jafnaði skiptist hver athöfn í þrjár fimmtán mínútna lotur. Á milli lota er kælt í náttúrunni og boðið upp á léttar veitingar.
Nánar um upplifunina
Mælt er með að mæta í sundfötum og baðslopp. Gott er einnig að hafa með handklæði til að sitja á og þægilega skó til að nota á milli lota, sérstaklega ef frost er úti.
Á staðnum eru geymslukassar til að geyma föt og önnur verðmæti, auk aðstöðu til að skipta um föt. Engin salernis- og sturtuaðstaða er á staðnum.
Gusan er á Suðurbraut 8 í Tjarnabyggð.
Um okkur
Erna Dögg og Guðrún Ásta
Vinkonur með sameiginlega ástríðu fyrir náttúru, vellíðan og krafti gufunnar.
Nánar um okkur
Erna Dögg er næringar- og matvælafræðingur að mennt og hefur mikinn áhuga á heildrænni heilsu. Hún hefur sjálf glímt við flókna tauga- og stoðkerfisverki og fundið mikla bót með aðstoð gufunnar. Erna á tvö ung börn og finnst sérstaklega skemmtilegt að fá félagslega útrás í gufunni og vera í góðum hópi.
Guðrún Ásta er menntaður lögfræðingur og tveggja barna móðir. Gusan hefur hjálpað Guðrúnu að finna góðan og heilbrigðan farveg fyrir erfiðar tilfinningar, ekki síst í kjölfar ótímabærs andláts eiginmanns hennar árið 2024.

Viðburðir
Annars vegar er boðið upp á opnar gusur og hins vegar hópgusur fyrir einkahópa.
Í opnum gusum er hægt að bóka stök pláss og tekið er á móti að hámarki sex manns. Boðið er upp á fasta tíma fyrir opnar gusur á þriðjudögum klukkan 18. Auk þess eru sérstakar opnar gusur auglýstar sérstaklega.
Hópgusur fyrir einkahópa eru í boði fyrir allt að átta manns og eru kjörið tækifæri fyrir fjölskyldur, vinahópa og vinnustaði til að eiga skemmtilega og nærandi samveru. Hægt er að óska eftir að gusan sé löguð að tilefninu, til dæmis með lengri gusu, meiri orku, rólegri stemningu eða sérstöku þema. Við sníðum upplifunina að hópnum og óskum hans.
Einnig er mögulegt að leigja aðstöðuna fyrir hópa sem vilja nýta hana á eigin forsendum, til dæmis með því að stýra gusunni sjálfir eða halda sinn eigin viðburð. Hafðu samband ef þú hefur áhuga eða vilt fá nánari upplýsingar.

Hópgusur fyrir einkahópa
Hópgusa
35.000 kr.
1 skipti · 75 mínútur
3 lotur · auka samvera eftir gusu
Allt að 8 þátttakendur · 4.375 kr. á mann í fullskipaðri gusu.
Hópgusa – þrjú skipti
84.000 kr.
3 gusur · 75 mínútur
3 lotur · auka samvera eftir gusu
Allt að 8 þátttakendur · 3.500 kr. á mann í fullskipuðum gusum.
Tilefnisgusa
48.000 kr.
Allt að 8 þátttakendur
Samtals 2 klst.
Sérstaklega aðlöguð að þörfum og óskum hópsins.
Sérstakar veitingar og auka tími til samveru.
Tilefnisgusa · lúxus
70.000 kr.
Allt að 8 þátttakendur · samtals 2 klst.
3 lotur · 15–20 mínútur hver · auka tími til samveru.
Sérstaklega aðlöguð að þörfum og óskum hópsins.
Veglegar veitingar og veglegur gjafapakki.
Handklæði og brúsar á staðnum.
Gefðu upplifun hjá gusunni að gjöf.




Verið velkomin í gusuna okkar
Við hlökkum til að taka á móti ykkur í hlýju, gufu og góðri nærveru.